Lög sem tengjast Danslagakeppni SKT hljóma í þættinum en einnig nokkur lög sem eru frá sama tíma og keppnin var haldin. Lögin eru eftir Steingrím M. Sigfússon, Guðnýju Richter, Theódór Einarsson, Árna Ísleifsson, Jóhannes G. Jóhannesson, Ólaf Gauk, Hörð Hákonarson og Freymóð Jóhannsson, eða Tólfta september.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.