Á tónsviðinu

Tónlist við kvæði sr. Ólafs Jónssonar á Söndum


Listen Later

Í þættinum verður flutt tónlist við kvæði eftir sr. Ólaf Jónsson á Söndum sem fæddist 1560 og dó 1627. Hann orti mörg kvæði, bæði trúarleg og veraldleg, og oft fylgja íslensk þjóðlög ljóðum Ólafs í handritum. Eitt þekktasta veraldlega kvæði hans er „Eitt sinn fór ég yfir Rín“ sem er reyndar þýðing á þýsku ljóði. Flutt verður tónlist eftir Gunnstein Ólafsson, Tryggva M. Baldvinsson, Báru Grímsdóttur, Huga Guðmundsson, Önnu S. Þorvaldsdóttur og Þuríði Jónsdóttur.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV