Á tónsviðinu

Tónverk byggt á smásögunni Stórhríð


Listen Later

Tónverkið sem verður þungamiðja þáttarins í dag er eftir rússneska tónskáldið Georgy Sviridov og byggt á smásögunni „Stórhríð" eftir Alexander Púskín. Smásaga Púskíns kom út árið 1831 og þykir snilldarverk, hún er sérkennileg blanda af harmleik og farsa. Elskendur ætla að hlaupast á brott saman og giftast á laun, en örlög þeirra beggja gjörbreytast þegar unnustinn villist í stórhríð á leið til kirkjunnar. Árið 1964 var gerð kvikmynd eftir þessari sögu og samdi Georgy Sviridov tónlist við hana. Síðar samdi hann hljómsveitarsvítu upp úr kvikmyndatónlistinni og kaflar úr henni verða leiknir í þættinum. Einnig verður fluttur kafli úr sinfóníu nr.5 eftir Joachim Raff, en sinfónían hefur yfirskriftina "Lenore" og tengist sögu Púskíns óbeint. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðmundur Pálsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV