Á tónsviðinu

Tónverk og skáldverk tileinkuð janúar


Listen Later

Fjallað er um tónsmíðar og skáldverk sem eru tileinkuð janúarmánuði. Meðal annars verður lesið brot úr sögunni „Tólf með póstvagninum“ eftir H.C. Andersen og fluttur janúarkaflinn úr ballett sem danska tónskáldið Knudåge Riisager samdi upp úr sögunni. Af öðrum tónskáldum sem koma við sögu má nefna Pjotr Tsjaíkovskí, György Kurtág og Tómas R. Einarsson. Lesin verða ljóð um janúar eftir Jóhannes úr Kötlum og Snorra Hjartarson. Lesari er Leifur Hauksson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV