Í þættinum verður fjallað um tónverk og skáldverk sem tengjast uglum. Meðal tónsmíða sem fluttar verða eru sönglagið „Käuzlein" (Litla uglan) eftir Robert Schumann, píanóverkið „Turnuglan er ekki flogin burt" eftir Leos Janácek og sönglagið „The Owl and the Pussy Cat (Uglan og kisinn) eftir Ígor Stravinskí. Fá íslensk skáld hafa ort um uglur, en Jónas Hallgrímsson samdi ævintýri: „Stúlkan í turninum", þar sem ugla kemur mikið við sögu. Snorri Sigfús Birgisson hefur byggt tónverk á þessu ævintýri Jónasar og atriði úr því verða flutt í þættinum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðmundur Pálsson.