Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Anton Helgi Jónsson, rithöfundur og áhugamaður um álfa og huldufólk orðsendingu Árna Sveinssonar til Guðjóns Ásgeirssonar á Kýrunnarstöðum. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.