
Sign up to save your podcasts
Or


Í þættinum held ég áfram umfjöllun minni um strand Persier á Mýrdalssandi árið 1941.
Í þættinum verður m.a. til umfjöllunar frásögn skipstjóra Persier sem og upphafið á þeim miklu deilum sem urðu vegna járnsins sem fleygt var frá borði á strandstað.
Í þætti dagsins förum við aftur til ársins 1941. Í lok febrúar þetta ár gekk yfir landið mikið óveður sem olli víða miklu tjóni. Í þessu mikla fárviðri strandaði belgíska flutningaskipð Persier á Mýrdalssandi, strandið átti seinna meir eftir að valdamiklum deilum sem enduðu í dómsmáli og brágðabirgðaverkstæði var reist við Hafursey svo eitthvað sé nefnt. Strandið markaði upphafið af lengri og merkilegri sögu sem ég ætla að gera frekari skil.
Fjórði og síðasti þáttur minn um flugslysið á Mýrdalsjökli byggir fyrst og fremst á samtölum mínum við þá Reyni Ragnarsson og Þóri Kjartansson í Vík. En báðir þekkja þeir söguna af eigin raun.
Í þessum þriðja þætti um flugslysið á Mýrdalsjökli förum við frá sjötta áratugi síðustu aldar, þar sem við höfum verið stödd fram að þessu í sögunni, og til ársins 1981 þegar brak flugvélarinnar kom undan jökli. Að lokum verður fjallað um sögu Neptune flugvélanna.
Í þessum öðrum þætti verður flugslysið á Mýrdalsjökli árið 1953 áfram til umfjöllunar. Þar sem m.a. ferðasögur þeirra Brands Stefánssonar og Ragnars Þorsteinssonar verða til umfjöllunar, en óhætt er að segja að þær varpi skýru ljósi á hversu gríðarlega erfiðar aðstæður voru til leitar á jöklinum.
Í þessum fyrsta þætti verður til umfjöllunar flugslysið á Mýrdalsjökli í desember árið 1953. Um er að ræða fyrsta þáttinn af fjórum í umfjöllun um þennan sorglega atburð.
From the publisher's feed