Sign up to save your podcasts
Or

Ný hagspá Greiningardeildar Landsbankans til ársins 2029 ber titilinn Hægur vöxtur en batnandi horfur. Verðbólga er enn há, vextir sömuleiðis og hagvöxtur hóflegur, en ýmislegt bendir til þess að bjartari tímar séu fram undan.
Í þættinum er rætt um samspil verðbólgu, hárra vaxta, gengi krónunnar, þróun á vinnumarkaði og stöðuna á húsnæðismarkaði. Eru vaxtalækkanir handan við hornið? Og hvað getur helst breytt horfunum næstu misserin?
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, og Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í Greiningardeild bankans, ræða nýju hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson, hagfræðingar hjá Greiningardeild Landsbankans, ræða stöðu efnahagsmála og framtíðarhorfurnar við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Í nýjasta þætti Umræðunnar fara Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson yfir nýjustu vendingar í efnahagsmálum með Kristínu Gunnarsdóttur. Stýrivextir voru hækkaðir, hagvöxtur mældist 2,7% á fyrsta ársfjórðungi, verðbólga mældist 5,1% í maí en undir yfirborðinu má sjá merki um kólnandi hagkerfi. Rætt er um áhrif gagnavera á hagvöxt, stöðu húsnæðismarkaðar, verðbólguþróun og horfur næstu mánaða.
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans (setja link). Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári.
Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson úr greiningardeild Landsbankans ræða hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviða
Fundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Verðbólga hefur hjaðnað á síðustu mánuðum og vextir þokast niður á við. Viðnámsþróttur hagkerfisins virðist samt þó nokkur og segja má að hagkerfið stefni í átt að mjúkri lendingu. Óvissa í heimshagkerfinu hefur þó magnast á síðustu vikum og Ísland er í viðkvæmri stöðu gagnvart hnökrum á alþjóðaviðskiptum.
Hagfræðingar greiningardeildar bankans stikla á stóru um efnahagsmál í nýjasta þætti Umræðunnar.
From the publisher's feed
Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.