Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Kristján Ólafur Eðvarðsson netsérfræðingur í Reykjavík auglýsingu sem Norðmaðurinn Olaf Forberg, verkfræðingur og landsímastjóri birti í krafti embættis síns í Morgunblaðinu í janúar 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.