Hlustaðu nú!

Ung tónskáld í Upptaktinum - Sóley Lóa og Gunnar Alexander


Listen Later

Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í fullbúnum tónleikasal. Í þessum þáttum kynnumst við öllum tólf tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum í Hörpu árið 2020 og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2021.
Fimmti þáttur:
Sóley Lóa Smáradóttir (13 ára) og verkið hennar?Nóvember".
Gunnar Alexander Freysson (11 ára) og verkið hans ?Five times".
Tónverkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Norðurljósum í Hörpu, þriðjudaginn 16. júní árið 2020. Í hljómsveit Upptaktsins eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Hjalti Nordal, Herdís Anna Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Grímur Helgason, Jóhann Ingi Benediktsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sigurður Ingi Einarsson. Þórður Hallgrímsson, tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Nóvember og Hjalti Nordal, einnig tónsmíðanemi, aðstoðaði við útsetningu verksins Five times.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Hlustaðu nú!By RÚV