Að minnsta kosti þrjú íslensk tónskáld hafa samið tónlist við kvæðið „Únglingurinn í skóginum“ eftir Halldór Kiljan Laxness. Þekktast er lag Jórunnar Viðar, en Karl O. Runólfsson og Ragnar Björnsson sömdu einnig tónverk upp úr kvæðinu. Í þættinum verða fluttar tónsmíðar þeirra allra, þar á meðal ný hljóðritun af tónverki Ragnars þar sem dóttir hans, Birna Ragnarsdóttir, syngur. Einnig verður flutt lag Jórunnar við framhald ljóðsins sem sjaldan heyrist. Þó að íslensk tónskáld hafi kunnað að meta þetta ljóð Laxness gegndi öðru máli um íslenska alþingismenn árið 1925 þegar kvæðið birtist fyrst á prenti. Laxness hafði skömmu áður sótt um ferðastyrk til Alþingis og hafði verið samþykkt í neðri deild þingsins að veita honum styrk. „En rétt áður en málið kom til afgreiðslu í efri deild birtist Únglingurinn í skóginum í tímaritinu Eimreiðinni. Þegar alþíngismenn lásu kvæðið, luku flestir upp einum munni að öllu hraklegri leir hefði varla sést prentaður á Íslandi og ekki æskilegt að styrkja menn af ríkisfé til að setja saman meira af svo góðu,“ segir skáldið. „Og var sá styrkur úr sögunni“.