
Sign up to save your podcasts
Or


Í Uppgjörinu er rætt við Ellert Hlöðversson, fjármálastjóra Íslandsbanka, um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, samkeppnishæfni bankanna og af hverju vaxtamunur á Íslandi er hærri en á Norðurlöndunum.
Einnig er fjallað um:
– Er fjármálaráðherra að gleyma því að hækkun bankaskatts rýrir arðgreiðslugetu Landsbankans?
– Verkfall flugvirkja hjá Icelandair
– Arðbærustu fyrirtæki landsins
– Uppfært verðmat á NOVA og vanmetnir innviðir
– Umræða um vandamál íslenska hlutabréfamarkaðarins
Uppgjörið, hlaðvarp um viðskiptafréttir og verðbréfamarkaði, er samstarfsverkefni AKKUR og Hluthafans.
Í Uppgjörinu er rætt við Agnar Tómas Möller, sagnfræðing og skuldabréfafjárfesti, um fjárlögin og skuldabréfamarkaði.
Einnig er fjallað um:
– Kaup tæknirisans Replit á íslenska sprotanum Test 13
– Jákvæða þróun í tekjumyndun Icelandair
– Vaxtarsprotann 1939 Games, sem gæti margfaldað umsvifin á næstu 12-18 mánuðum
– Breytingar á hluthafalistum sem sýna m.a. nýja erlenda stöðu í Högum
– Verðmat AKKUR á Skaga og hvers vegna fjármálafyrirtækið er vanmetið á markaði
Uppgjörið, hlaðvarp um viðskiptafréttir og verðbréfamarkaði, er samstarfsverkefni AKKUR og Hluthafans.
From the publisher's feed
Uppgjörið er samstarfsverkefni AKKUR og Hluthafans sem fjallar um viðskiptafréttir og verðbréfamarkað