
Sign up to save your podcasts
Or


Við fengum nýjasta þingmann okkar sunnlendinga í spjall en Ingveldur Anna Sigurðardóttir kom í heimsókn. Hún fer hérna yfir æskuna undir Eyjafjöllum, árin í Búðardal og síðan aftur flutninginn heim í sveitina. Hún fór óvænt inn á þing í sumar og hefur þegar markað sér spor. Hér er um að ræða ungan og öflugan fulltrúa okkar á þingi sem á efalaust eftir að láta meira að sér kveða í framtíðinni.
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, heimsóttu hið stórglæsilega Felagsheimili Hrunamanna. Edda Jónsdóttir tók á móti okkur og fræddi okkur um hugmyndina bak við félagsheimilið. Góður opnunartími og alltaf heitt á könnunni. Þarna er hægt að setjast niður og glugga í bækur og blöð, spjalla yfir kaffibolla hitta nágrannana og eiga rólega stund í amstri dagsins. Í félagsheimilinu er líka önnur starfsemi eins og Fríbúðin. Um leið og ég bendi á að kynna sér félagsheimilið í þessu spjalli þá hvet ég alla til að kíkja í kaffi.
Sigurður Helgi Pálmason er sjöundi þingmaður sunnlendinga. Hér fer hann yfir lífshlaup sitt, æskuna í Garðabæ, fjölskylduna, skólann á Eiðum, sjómennskuna, tónlistina, þættina Fyrir alla muni og náttúrulega þingmennskuna. Stórskemmtilegt og opið spjall og hann hafði frá mörgu spennandi að segja.
Nú brugðu tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, undir sig bensín- og rafhlöðufótunum og heimsóttu Leikfélagið Borg. Þar er verið að æfa leikrítið Afsakið hlé sem er gamanleikrit og fjallar um lífsins vandamál sem Ævar Eiður er að glíma við og reyna að leysa með aðstoð vina sinna. Við sögu koma Helgi Dagur, Mist Eik og Leifur Arnar. Við ræddum við leikarana auk þess að heyra í formanni leikfélagsins, Guðnýju Tómasdóttur og Lilju Nótt Þórarinsdóttur leikstjóra. Frumsýning er 16. okt. og þetta er skemmtun sem enginn má missa af.
Nýjasti þingmaður okkar sunnlendinga er Sandra Sigurðardóttir, VIðreisn. Hún er úr Hveragerði eins og fleiri þingmenn og hefur verið þar í bæjarmálapólitíkinni. Hún hefur komið víða við og má vel segja að hún óttast ekki að taka að sér flókin og á tíðum erfið og krefjandi verkefni. Betur frá því í þessu spjalli okkar og ég hvet alla til að kynnast henni og fyrir hvað hún stendur.
Til mín komu tvær frábærar konur, þær Marta Esther Hjaltadóttir frá Kvenfélagi Hrunamannahrepps og Lára Bergljót Jónsdóttir frá Kvenfélagi Skeiðahrepps. Þær komu til að kynna fyrir okkur sameiginlegt verkefni kvenfélaganna í uppsveitum Árnessýslu en það er Skemmtikvöld í góðum félagsskap í Árnesi 02.09. Þetta kvöld er haldið í tilefni af viku einmannaleikans, ókeypis inn og mikið um dýrðir. Um leið kynntu þær fyrir okkur starf kvenfélaganna sem er alls ekki bara að baka kökur. Heyrn er sögu ríkari.
Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður okkar sunnlendinga og formaður Sjálfstæðisflokksins, kom í spjall í fyrstu haustlægðinni. Guðrún hafði frá mörgu að segja, æskunni og uppvextinum í Hveragerði, lífinu með Kjörís, samheldinni fjölskyldu, ferðalögum á fjöllum og svo auðvitað pólitíkinni. Guðrún brennur fyrir landi og þjóð og veit ekkert betra en að ferðast um hálendið og kynnast náttúrunni. Það var gaman að fá að kynnast hinni hliðinni á Guðrúnu, þessari sem ekki birtist í sjónvarpinu frá þingi eða í pólitískum umræðuþáttum.
Uppsveitakastið heimsótti Heimi Karlsson í Grímsnes- og Grafningshreppnum. Þar hefur hann, ásamt eiginkonu sinni, búið sér heimili á fallegum friðsælum stað í kjarrinu. Heimir talaði um æsku sína í smáíbúðahverfinu í Reykjavík, íþróttirnar, árin á Stöð 2, Holland, England og síðan mogunútvarpið á Bylgjunni. Heimir er einn af þeim fáu sem hefur spilað landsleiki bæði í handbolta og fótbolta og eins orðið íslandsmeistari í báðum greinum. Áhugavert spjall um heima og geyma.
Þingmenn sunnlendinga hafa fengið boð um að koma í Uppsveitakastið. Fyrst til að mæta var Ásta Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins og fyrsti þingmaður suðurlands.
Ásta Lóa hafði frá mörgu skemmtilegu að segja um það sem hefur á daga hennar drifið. Uppvöxturinn í Reykjavík og síðan Mosfellssveit, Kvennaskólinn, Suður- Afríka og margt fleira. Í eftirköstum hrunsins tók hún síðan upp nýtt hlutverk þegar hún fór að berjast fyrir heimilin gegn bankakerfinu. Þaðan lá leið hennar síðan á Alþingi fyrir Flokk fólksins þar sem hugsjónirnar um bættan hag heimilanna halda áfram að eiga hug hennar.
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, ræddu um veturinn framundan og hvað er í boði. Það bendir allt til þess að íþóttastarf verði mjög spennandi í öllum sveitarfélögum, og svo eru það klúbbar og allt.
From the publisher's feed
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu