Upptakturinn eru tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem þau fá tækifæri til þess að senda inn hugmyndir að tónverkum, fullvinna þau með aðstoð tónskálda og heyra þau svo flutt af atvinnutónlistarfólki í Hörpu. Í þessum þáttum kynnumst við öllum þrettán tónskáldunum sem tóku þátt í Upptaktinum árið 2019, fylgjum verkum þeirra frá innsendri hugmynd að frumflutningi og hitum þannig upp fyrir Upptaktinn árið 2020.
Verkin sem heyrast í þættinum voru flutt af hljómsveit Upptaktsins í Silfurbergi, þriðjudaginn 9. apríl 2019. Hljómsveit Upptaktsins skipa þau Gróa Margrét Valdimarsdóttir á fiðlu, Herdís Anna Jónsdóttir á víólu, Bryndís Björgvinsdóttir á selló, Gunnlaugur Torfi Stefánsson á bassa, Grímur Helgason á klarinett, Kristján Hrannar Pálsson á píanó, Sigurlaug Björnsdóttir á flautu og Sigurður Ingi Einarsson á slagverk. Einnig heyrist Sinfóníuhljómsveit Íslands spila verkið „Jú víst!" í útsetningu Tryggva M. Baldvinssonar á tónleikum sveitarinnar 5. október 2019.
Fjórði þáttur:
Tómas Bogi Bjarnason (12 ára) og verkið hans „Tannkremsverksmiðja Jóa"
Lára Rún Eggertsdóttir (10 ára) og verkið hennar „Jú víst"
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir