Veistu hvað?

Veistu hvað?

By RÚVEducation
Download on the App Store

Veistu hvað? episodes

  • 50
    Veistu hvað Veistu hvað er gamall? Þáttur dagsins er 50 þátta afmælisþáttur og jafnframt síðasti þátturinn fyrir sumarfrí þeirra Vigdísar og Guðmundar. Í þættinum er horft um öxl og líka smá talað um töluna 50, sem er reyndar frekar óáhugaverð tala. Gestir þáttarins eru aðdáendurnir Magnús Thorlacius og Sólrún Agla Bjargardóttir, þau taka þátt í krefjandi spurningakeppni um hluti sem allir fastahlustendur Veistu hvað? ættu að vita. Gleðilegt sumar! Sjáumst síðar!
    1 hr
  • Jordan Peterson
    Veistu hvað Jordan Peterson á að hafa gert á Þingvöllum í júní 2018? Eða var þetta allt bara misskilningur? Það er ýmislegt að finna á veraldarvefnum um þennan umdeilda sálfræðing, jákvætt sem neikvætt, 2 mínútur sem 3 tímar, rétt sem rangt. Vigdís er búin að lesa helling, en alls ekki nóg og Gummi sá stuðandi Vice-myndband. Gunnlaugur Jónsson, stjórnandi Jordan Peterson klúbbsins á Facebook, kemur í þáttinn og segir frá viðhorfi sínu til hálfvita/hetju samtímans og bendir á hvar sé hægt að byrja.
    1 hr
  • Landvarsla
    Veistu hvað landverðir gera til að fá ekki skyrbjúg? Eða hvað þeir gera yfirhöfuð? Vigdís fræðir Gumma um þessa dularfullu starfsmenn ríkisins, friðlýst svæði á Íslandi (sem ná samt líka yfir steina?) og þjóðgarða, auk þess sem splunkunýr liður kemur fram á heyrnarsviðið: NOSTALGÍUHORNIÐ. Katrín Pálma- og Þorgerðardóttir, fyrrum landvörður, segir frá starfinu, túristunum, lygurunum og sandinum og heldur erfiða, en sanngjarna, spurningakeppni.
    1 hr
  • Ruslfrír lífsstíll
    Veistu hvað verður um ruslið okkar eftir að við hendum því? Það virðast fáir vera með ruslamál alveg á hreinu enda upplýsingar um sorphirðu og flokkun oft algjört torf. Gummi og Vigdís reyna að átta sig betur á þessu öllu saman en komast helst að því, að það er Gummi sem er vandamálið. Þau komast líka að því að það er hægt að henda minna rusli, en Judit Varga, stjórnandi Facebookhópsins: Ruslfrír lísfsstíll (Zero Waste) - Iceland, gefur hlustendum ráð um hvernig megi minnka heimilissorpið.
    40 min
  • Roller derby (Hjólaskautaat)
    Veistu hvað þarf marga dómara til að dæma einn roller derby leik? Veistu yfir höfuð hvað roller derby er? Það heitir hjólaskautaat á íslensku, ef það hjálpar eitthvað. Í þætti vikunnar fjöllum við um íþróttina sem hefur verið að tröllríða heiminum síðan Whip it kom út árið 2009. Skrautlegir hjálmar, augnmálning og ógnvekjandi skautanöfn eru notuð til þess að gera íþróttina að miklu sjónarspili. Og það sem er kannski skemmtilegast er að allir eru velkomnir. Alex Steinþórsdóttir (betur þekkt sem Lexía de Trix) kíkir í heimsókn og útskýrir hvað það er sem dregur sífellt fleira fólk í þessa skrítnu íþrótt. Vigdís býr sér til skautanafn en byrjar síðan að sjá eftir því vegna þess að hún er sinn eigin harðasti dómari. Og já, talandi um dómara. Það þarf að minnsta kosti 7 dómara til að dæma leik.
    1 hr
  • Kaffi
    Veistu hvaða drykkur er sá vinsælasti í heiminum? Það er kranavatn. En veist hvaða drykkur er næst vinsælastur í heiminum? Það er te. En kaffi er líka mjög vinsæll drykkur! Vissirðu að Finnar drekka að meðaltali fjóra bolla á dag? Og pabbi Vigdísar drekkur að meðaltali 10 bolla á dag. Og ef þú drekkur 100 bolla á dag, þá deyrðu sennilega. Allt um kaffi, köttinn Creme Puff, kúkabaunir og uppáhellingaraðferðir í þætti dagsins. Tumi Ferrer kíkir í heimsókn og talar heimspekilega um þennan brúna drykk sem við þekkjum öll svo vel en kunnum flest ekkert að hella uppá.
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    1 hr
  • Berghain
    Veistu eitthvað um Berghain, frægasta teknóklúbb heims? Fleiri hafa allavega heyrt sögur af staðnum, en hafa komist inn, enda langflestum vísað frá við innganginn. Vigdís fór í asnalega (en gleraugnalausa) vettvangsferð í þetta gamla raforkuver og fræðir Gumma og hina ýmsu kima staðarins, þó ekki nóg til að svala allri forvitni hans.
    Vigdís Ósk Howser Harðardóttir, þekkt undir listamannsnafninu Fever Dream, er gestur þáttarins, enda sá Íslendingur sem hefur líklegast farið hvað oftast inn á þennan dularfulla stað.
    Umsjón: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson í útsetningu Hjálmars Óla Hjálmarssonar
    Lag: Achso með Fever Dream og Alice Go
    Byrjun: Næturklúbburinn og þráin eftir að vera dæmur, eftir Halldór Armand
    http://www.ruv.is/frett/naeturklubburinn-og-thrain-eftir-ad-vera-daemdur
    1 hr
  • Töfrabrögð
    Veistu hvað David Blaine getur haldið niðri í sér andanum lengi? Vissirðu að David Copperfield lét einu sinni Frelsisstyttuna hverfa? Vissirðu að Stephen Fry og Karl bretaprins eru meðlimir í samtökum töframanna? Allar þessar staðreyndir og miklu fleiri staðreyndir um merkilega karlmenn má finna í þætti vikunnar. Gummi og Vigdís tala um siðferðislega ábyrgð töframanna og Lalli töframaður segir frá því þegar hann glataði töfrum barnæskunnar og seldi sál sína töfradjöflinum, einungis 6 ára gamall. Eða hann orðaði það ekki beint svoleiðis en þú veist.
    Umsjón: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Gestur: Lárus Blöndal Guðjónsson
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    Lag: Pilot - Magic (í mörgum útgáfum)
    1 hr
  • Táknmál
    ÞÚ VITA voo bhb (hvernig) SPURNING SKRIFA TUNGUMÁL? Svar: spurningin er skrifuð á íslensku táknmáli, en það er eitt af ríflega 140 táknmálum í heiminum.
    Táknmál hefur þurft að þola mikið mótlæti en alltaf risið á ný, svona eins og sólin. Nú er það jafn rétthátt íslensku sem tjáningarform.
    Margrét Gígja Þórðardóttir, táknmálskennari, segir frá málinu, Döff-samfélaginu og hegðun Vigdísar í framhaldsskóla.
    Klipping og umsjón: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir
    Stef: Bjarmi Hreinsson
    Þakkir fá Áslaug Ýr Hjartardóttir, Eyrún Elíasdóttir, Helga Hákonar og Sæunn Jódís Sunnudóttir.
    1 hr
  • Sjósund
    Veistu hvað er gott við að fara í sjósund? Allavega ekki nógu mikið til að sannfæra Gumma um að taka þátt í æðinu sem hefur heltekið ofurkerlingar og huga landsins. Sjósund heillar ýmsa en hræðir fleiri og er stundað víðast hvar á landinu, líka þar sem hitastig sjávar er -1,8 C. Já, MÍNUS.
    Íris Stefanía Skúladóttir, sviðslistakona og garpur mætir viðtal og segir sögur úr sjónum.
    VIÐVÖRUN:
    Aðgát skal höfð í nærveru sjávar.
    1 hr

About Veistu hvað?

From the publisher's feed

Veistu hvað? er vikulegur þáttur um alls konar sem þú veist ekkert um, veist mjög mikið um, ættir að vita meira um eða er bara einfaldlega skemmtilegra að vita. Guðmundur Felixson og Vigdís…