HR Hlaðvarpið

Verkfræðivarpið // 11. þáttur: Dr Marta Kristín Lárusdóttir


Listen Later

Haukur Ingi og Þórður Víkingur ræddu við Dr. Mörtu K. Lárusdóttir prófessor við tölvunarfræðideild HR. Marta er einn helsti sérfræðingur landsins í Agile verkefnastjórnun sem hefur víða rutt sér rúms í atvinnulífinu á síðustu árum. Marta er brautryðjandi við að rannsaka samband manns og hugbúnaðar og segir á lifandi og skemmtilegan hátt frá því hvernig þetta áhugaverða samband hefur þróast innan hugmyndaheims verkefnastjórnunar.

UM VERKFRÆÐIVARPIÐ
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

UM HR HLAÐVARPIÐ
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple Podcasts og iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HR HlaðvarpiðBy Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University