Margir tónlistarunnendur kannast við Vilíu-sönginn úr óperettunni „Kátu ekkjunni" eftir Franz Lehár. Vilíur eru verur í slafneskri þjóðtrú, eins konar álfameyjar, undurfagrar, en um leið hættulegar. Flutt verður tónlist þar sem þær koma við sögu, en auk „Kátu ekkjunnar" má þar nefna óperuna „Le Villi" eftir Giacomo Puccini og ballettinn „Giselle" eftir Adolphe Adam. Einnig koma vilíur fyrir í bókum J.K Rowling um Harry Potter og eru kallaðar „válur" í íslenskri þýðingu Helgu Haraldsdóttur. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jónatan Garðarsson.