Fjallað um heimsmynd Völuspár á þeim tíma þegar menn voru á jörðinni og goðin á himni þar sem hreyfingar Sólar, Mána og reikistjarna voru túlkaðar með goðsögum - áður en vísindin sögðu jörðina snúast í kringum sólina.
Skyggnst er að tjaldabaki Völuspár og reynt að komast nær skilningi á heimsmynd kvæðsins, myndmálinu, flutningi í lifandi hefð síns tíma og þeim hugmyndum sem kvæðið kveikti hjá áheyrendum á 13. öld og til okkar daga. Umsjón hefur Gísli Sigurðsson, sérfræðingur í þjóðfræði við Árnastofnun. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið. Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson.