Fríhöfnin

Völuspá 3/5


Listen Later

Skyggnst er að tjaldabaki Völuspár og reynt að komast nær skilningi á heimsmynd kvæðsins, myndmálinu, flutningi í lifandi hefð síns tíma og þeim hugmyndum sem kvæðið kveikti hjá áheyrendum á 13. öld og til okkar daga. Umsjón hefur Gísli Sigurðsson, sérfræðingur í þjóðfræði við Árnastofnun. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið. Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson.
Talað um orðfæri Völuspár um endalok heimsins og hvernig það gæti hafa mótast af reynslu fólks af eldgosum hér á landi í bland við hugmyndir trúarlegra texta og myndlist sem hingað barst frá meginlandinu. Lesari: Friðrik Erlingsson. Einnig heyrist í Gunnari Eyjólfssyni flytja brot úr Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen. Tónlist og hljóðmynd: Pétur Grétarsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV