Skyggnst er að tjaldabaki Völuspár og reynt að komast nær skilningi á heimsmynd kvæðsins, myndmálinu, flutningi í lifandi hefð síns tíma og þeim hugmyndum sem kvæðið kveikti hjá áheyrendum á 13. öld og til okkar daga. Umsjón hefur Gísli Sigurðsson, sérfræðingur í þjóðfræði við Árnastofnun. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, flytur kvæðið. Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Tónlist og áhrifahljóð samdi Pétur Grétarsson.
Komið er að útisetu völvunnar og leiðslubókmenntum miðalda þar sem mannleg vera kemst í samband við einhvern að handan, sem veitir henni sýn í annan heim eða til framtíðar - eins og Óðinn gerir þegar hann opnar völvunni spásýn til ragnaraka.