Í þættinum er leikin tónlist sem tengist vorinu eftir Robert Schumann. Meðal annars hljómar fyrsti kaflinn úr Vorsinfóníunni, en það var fyrsta sinfónía Schumanns, samin árið 1841. Einnig verða fluttir vorsöngvar sem Schumann samdi við ljóð eftir ýmsa höfunda. Þótt söngvarnir tengist allir vorinu eru þeir ólíkir, sumir þeirra fagna vorinu innilega eins og söngurinn „Frühlingsgruss“ (Vorkveðja) við ljóð eftir Hoffmann von Fallersleben, aðrir eru angurværir eins og „Erstes Grün“ (Fyrsta grænkan) við ljóð eftir Justinus Kerner. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.