Tónlistarmađurinn Prince skírđist til votta Jehóva fyrir rúmum áratug og hefur í kjölfariđ breytt sumum textum sínum og öđrum sleppir hann alveg ađ syngja.
Um ţetta verđur fjallađ lítillega í Rokklandi á morgun (20.04.2013).
Skoska söngkonan Emeli Sandé hefur slegiđ í gegn. Fyrsta platan hennar fór beina leiđ á topp vinsćldalistans í Bretlandi ţegar hún kom út í fyrra. Hún hlaut tvenn helstu verđlaunin ţegar breksu tónlistarverđlaunin voru afhent síđast; "tónlistarkona ársins" og "plata ársins". Hún söng líka viđ bćđi opnunar og lokahátíđ Ólympíuleikanna í London í fyrra. Hún kemur viđ sögu í Rokklandi.
Upptökustjórinn Andy Johns sem tók m.a. upp allar helstu plötur Led Zeppelin og nokkrar međ Rolling Stones lést á dögunum og hans verđur minnst í ţćttinum.
Jeff Lynne er sérlundađur furđufugl. Eđa hvađ? Óli Palli fjallar um hann og spilar lög af sólóplötunni hans sem kom út síđasta haust. Platan heitir Longwave og inniheldur gamlar dćgurlagaperlur sem Lynne heyrđi í langbylgjuútvarpinu sínu ţegar hann var ađ alast upp í Birmingham árin eftir seinni heimsstyrjöldina.