Í fréttum er þetta helst
Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag.
Haukar urðu í kvöld bikarmeistarar í handbolta karla eftir sannfærandi 28-21 sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik keppninnar í Kuehne+Nagel höllin að Ásvöllum. Þetta er í áttunda skiptið sem Haukar verða bikarmeistarar í karlaflokki í handbolta.
Valur er bikarmeistari kvenna í handbolta árið 2026 eftir 23-19 sigur á Haukum í úrslitaleik að Ásvöllum.
Andri Þór Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum eftir að hafa starfað sem forstjóri Ölgerðarinnar, sem mun nú heita Bera, í rúmlega tvo áratugi. Hann hyggst þó ekki fara langt enda býður hann sig fram til stjórnarformennsku í móðurfélaginu Beru.
Hildur Björnsdóttir, Bjarni Eggerts Guðjónsson, Brynjar Þór Níelsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason verða í efstu fimm sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll nú fyrir stundu.
MR-ingurinn Illugi Gunnarsson var í dag kjörinn nýr formaður Ungra vinstri grænna. Hann er sonur Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi flokksformanns og forsætisráðherra.
Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.