Svörtu tungurnar

#0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo!


Listen Later

Þátturinn er í boði Malbygg

 

Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum…

Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á heilbrigðri og óheilbrigðri skömm? Hvað gerir maður til að rífa sig aftur upp eftir að hafa gert einhver skammarstrik? Og er ekki bara nauðsynlegt að kunna að skammast sín?

Þeim tekst þó líka að ræða áframhaldandi framþróun tölvuleiksins „Skoplegur blær“ sem þeir vinna hörðum höndum að og kom fram í síðasta innslagi þeirra, þeir ræða skipulagða erótík ráðsetta fullorðna fólksins, meðvirkni, og gríðarlega flókið víddar- og tímaflakk síðasta ævintýris sem Svörtu Tungunum tókst loksins að klára um daginn, fjórum árum eftir að spilið hófst.

 

 Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:

www.facebook.com/groups/svortutungurnar

 

Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:

Insta: www.instagram.com/svortutungurnar

Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

 

 – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur

 

 – Tónlist: Borrowed Knowledge

 – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Svörtu tungurnarBy Hljóðkirkjan