Fréttir dagsins

03.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri.
Íslensk kona sem býr í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Sírenuvæl sé á tveggja tíma fresti og haldi fyrir þeim vöku.
Svartabylur geisaði á Austfjörðum í dag og var fólki ráðlagt að halda sig innandyra. Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs tóku gildi í morgun á austanverðu landinu og í hádeginu tóku appelsínugular viðvaranir gildi á Austurlandi og Austfjörðum. Ferðamenn sátu fastir og björgunarsveitir stóðu í ströngu við að hjálpa ökumönnum í vanda og flytja heilbrigðisstarfsfólk til vinnu.
Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, greindi frá því í vitnisburði sínum fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings nýverið, að sambandi hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein hefði lokið 2003. Hann sagði að samskiptum þeirra hefði lokið þegar Clinton hitti styrktaraðila sem hentuðu betur en Epstein fyrir góðgerðasamtök Clintons, Clinton Global Initiative. Hann sagði að sér hefði þótt Epstein áhugaverður maður en hann hefði ekki haft mikinn áhuga á góðgerðarstarfi Clintons. Samskiptum þeirra hefði lokið löngu áður en upp komst um glæpi Epstein.
Tollgæslan tók þátt í alþjóðlegum aðgerðum 30 ríkja á vegum Europol þar sem var skorin upp herör gegn smygli á og viðskiptum með ólögleg lyf. Aðgerðirnar leiddu til þess að lagt var hald á lyf fyrir 33 milljónir evra, 3.354 einstaklingar ákærðir og 43 skipulagðir glæpahópar rannsakaðir. Lyfjastofnun liðsinnti Tollgæslunni við aðgerðirnar.
Í fyrsta skipti í fimm ár voru samræmd próf lögð fyrir grunnskólanemendur landsins. Þrátt fyrir minni háttar tæknivandræði fyrri hluta dags segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að próftakan hafi almennt gengið vel.
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæði að Brekkutröð í Hafnarfirði. Eldurinn var slökktur rétt eftir klukkan fimm.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins