Í fréttum er þetta helst
Davíð Oddsson ritstjóri, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sem lést að heimili sínu á sunnudaginn, 78 ára að aldri, mun hljóta opinbera útför. Banamein Davíðs var hjartaáfall.
Fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík er sakaður um fjárdrátt og að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins. Málið hefur verið kært til lögreglu og steig formaðurinn til hliðar um helgina.
Um 140 íslenskir ríkisborgarar eru staddir á áhrifasvæðum átakanna í Miðausturlöndum þar sem ófriður breiðist út með hraði. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að hún sé í virku samtali við hópinn.
Forstjóri atNorth á ekki von á að sala fyrirtækisins leiði til breytinga á starfsemi þess hér á landi. Bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board gengu frá kaupum á atNorth í síðari hluta febrúar.
Landsvirkjun hyggst verja 190 milljörðum króna í framkvæmdir á næstu fimm árum. Þrátt fyrir stórhuga áform er áfram stefnt á að borga 15 til 20 milljarða króna í arð á hverju ári.
Atvinnuvegaráðherra varði lögmæti frumvarps um afturköllun kvótasetningar á grásleppu á fundi atvinnuveganefndar. Hún hyggst leyfa með reglugerð að net séu tekin upp í vondum veðrum.
Engan sakaði þegar allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan fjögur í nótt vegna eldsvoða á neðstu hæð fjölbýlishúss í Grafarholti. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í íbúðina hafa verið alelda en að vel hafi gengið að slökkva eldinn.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.