Í fréttum er þetta helst
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag er sagt sýna það þegar bandarískur kafbátur grandar írönsku herskipi. Minnst 140 úr áhöfn er saknað en það tókst að bjarga nokkrum tugum manna.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar sem allsherjar-og menntamálanefnd mæltist til að yrði gerð fyrir þremur árum.
Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum.
Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, hafa verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum.
Frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um afturköllun kvótasetningar á grásleppu var samþykkt á Alþingi í dag. Á næsta fiskveiðiári verða veiðar á grásleppu því aftur byggðar á sóknardögum, ekki kvóta.
Meirihluti velferðarnefndar hefur afgreitt umdeilt frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu og fer það til þriðju og síðustu umræðu.
Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull og hefur ástandið aldrei verið verra að mati starfsfólks. Til stendur að opna nýtt hjúkrunarheimili, eða svokallað biðrými, í Urðarhvarfi í Kópavogi á næstu vikum. Rýmið á að geta tekið inn allt að 100 sjúklinga í senn.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.