Fréttir dagsins

06.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utan­ríkis­ráðherra kynnir þingsá­lyktunar­tillögu um þjóðar­at­kvæða­greiðslu um aðildar­viðræður að Evrópu­sam­bandinu (ESB) á fundi ríkis­stjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaða­manna­fundur þar sem efnis­at­riði til­lögunnar verða kynnt og dag­setning at­kvæða­greiðslunnar.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fór mikinn á iðnþingi Samtaka iðnaðarins í dag þar sem hann boðaði róttækar breytingar á raforkulögum. Breytingar miða að því að ágreiningur við landeigendur tefji ekki þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir um mörg ár.
181 er á lista borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins yfir þá sem látið hafa vita af sér í Mið-Austurlöndum. Þar af 68 fjölskyldur. 35 úr þeim hópi séu þegar farnir heim, ýmist á eigin vegum eða með björgunarflugi. Þá sé einnig stór hópur sem ekki hafi í hyggju að yfirgefa Mið-Austurlönd.
Þetta kyrrðarsamfélag hefur samt verið í hálfgerðu áfalli eftir að sextugum palestínskum karlmanni með maltneskt ríkisfang var haldið föngnum á heimili sínu í þrjá sólarhringa, hann beittur miklu harðræði og ævisparnaði hans rænt.
Ályktun stjórnar Læknafélag Íslands um tengingu örorku- og almannatryggingabóta við vísitölur vekur djúpar áhyggjur meðal þeirra sem lifa við langvinn og hamlandi veikindi.
Útför Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, sem gerð verður frá Hallgrímskirkju 13. mars verður send út á RÚV.
Stöðvarskylda leigubílstjóra var endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins