Fréttir dagsins

07.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist.
Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum.
Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Brottför Icelandair til Prag hefur verið frestað til klukkan ellefu og ferða til Amsterdam, Parísar og Helsinki á áttunda tímanum aflýst. Nokkrar brottfarir á þeim tíma eru enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en flestum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma.
Stjórnendur íslenska gagnaverafyrirtækisins atNorth áttu hlutabréf í fyrirtækinu fyrir rúmlega 24 milljarða króna við sölu þess. Fyrirtækið hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt og sagt var frá í vikunni. Kaupendur eru bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board.
Kristinn Jón Ólafsson verður oddviti Pírata í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann hafði betur gegn Alexöndru Briem núverandi oddvita í prófkjöri.
Innlögnum á Landspítala vegna áfengisneyslu hefur fjölgað töluvert síðustu áratugi og flestir leggjast inn með geð- og atferlisraskanir eða áfengistengda lifrar- eða brissjúkdóma. Innlagnir árið 2005 voru 101 en árið 2022 voru þær 250. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu. Innlögnum fjölgaði um 88% á þessu tímabili.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins