Fréttir dagsins

08.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab um síðustu helgi þar sem minnst 150 nemendur fórust. „Já ég held þetta sé þeim að kenna. Eins og þið vitið eru Íranir afskaplega ónákvæmir með hergögnin sín,“ sagði Donald Trump við fréttafólk um borð í forsetaþotunni. „Þá hreinlega skortir alla nákvæmni,“ sagði Trump.
Öflug sprenging varð við innganginn að bandaríska sendiráðinu í norsku höfuðborginni Ósló laust fyrir klukkan eitt að staðartíma í nótt. Michael Dellemyr, viðbragðsstjóri hjá Oslóarlögreglunni, segir í samtali við NRK að minni háttar skemmdir hafi orðið en vill ekki tíunda það frekar að svo stöddu.
Kristinn Jón Ólafsson varaborgarfulltrúi Pírata leiðir lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann tekur við oddvitasætinu af Alexöndru Briem sem vildi halda áfram. Hún hefur ekki gefið kost á viðtali. Alls voru 230 atkvæði greidd í kosningunni, sem var rafræn.
„Miðjan færist til hægri. Hægrið færist enn lengra í sömu átt,“ sagði Svandís Svavarsdóttir í síðustu ræðu sinni sem formaður Vinstri grænna. Hún gagnrýndi Samfylkinguna sem væri að vinna á „þríþrautarmóti í vondri pólitík“.
England vann 2-0 sigur gegn Íslandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta þökk sé marki og stoðsendingu frá Lucy Bronze.
Á Íslandi er bannað samkvæmt lögum að byggja hús sem ekki standast íslenskt veðurfar. Í Mannvirkjalögum og Byggingarreglugerð er skýrt kveðið á um að mannvirki skuli hönnuð og byggð þannig að þau þoli íslenskar veður- og raka aðstæður og valdi ekki heilsutjóni fyrir íbúa eða notendur. Viðurlög við brotum getur verið allt að 2ja ára fangelsi.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins