Svellið

#1 „Hjálpaðu mér upp“


Listen Later

Í þessum fyrsta ‏þætti Svellsins reima Ragnar Jón Humi Ragnarsson grunnskólakennari, Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands, og Ellen Jacqueline Calmon, verkefnastjóri, á sig skautana og rýna í áskoranirnar sem ungir drengir standa frammi fyrir í dag. 

Í þættinum ræða þau stafræna umhverfið sem börn og ungir drengir lifa og hrærast í, tilfinningar, skaðlega áhrifavalda og jákvæðar og neikvæðar hliðar netsins. 

Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár.


Stjórn upptöku: Baldur Ragnarsson
Þáttastjórnandi: Birna Pétursdóttir
Leikstjórn myndbands: Steinar Júlíusson
Grafík: Friðrik Snær Friðriksson
Tónlist: Einar Tönsberg (Eberg)
Skipulag: UN Women á Íslandi

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SvelliðBy Hljóðkirkjan