Fréttir dagsins

11.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Bandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum.
Evrópumálin eru komin kyrfilega á dagskrá eftir að ríkisstjórnin kynnti á föstudag þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“
Stúlkan sem lögreglan á Vesturlandi og björgunarsveitir leituðu að í gærkvöldi er fundin.
Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar kynferðisbrot sem átti sér stað í bænum aðfaranótt sunnudags. Fleiri en einn sakborningur eru grunaðir vegna málsins.
Kona, sem er grunuð um að hafa banað dóttur sinni og eiginmanni, verður áfram í farbanni til 30. mars. Þetta kemur fram í nýlega birtum úrskurði Landsréttar.
Sex eru látnir og fimm eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir að eldur kom upp í rútu í Sviss í gærkvöld. Rútan var í smábænum Kerzers sem er staðsettur um 20 kílómetra vestur af höfuðborginni Bern.
Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónassonar hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins