Fréttir dagsins

12.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans kom saman í dag og fundaði um starfsaðstæður þeirra. Það krefst þess að framkvæmdar verði úttektir á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga.
Tíu eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotárás sem beindist gegn skóla í norðurhluta Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Árásarmaðurinn er meðal látnu.
Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleypt af stokkunum verkefninu Vörður norðurslóða (e. Arctic sentry) sem er ætlað að auka eftirlit og umsvif hersveita og efla viðbragðsgetu bandalagsins í norðri. Utanríkisráðherra er mætt til Brussel og segir að Íslendingar muni finna fyrir hinu aukna umfangi.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.
Hryðjuverkamálið svokallaða verður tekið fyrir í Hæstarétti í dag. Tæpt ár er síðan Landsréttur staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sakborningunum Sindra Snæ Birgissyni og Ísidór Nathansson af ákæru er varðar hryðjuverk, en þeir voru fundnir sekir um vopnalagabrot.
Stjórn Arion banka leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut sem jafngildir 15,3 milljörðum króna. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum bankans var 30,6 milljarðir króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna 2024. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum bankans var 14,9 prósent, samanborið við 13,2 prósent 2024.
Um 59% þátttakenda í könnun á viðhorfum Grindvíkinga segja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu í Grindavík og 51% segir líkamlega heilsu verri. Helmingur þátttakenda hefur nýtt sér sálrænan stuðning og segja hann hafa nýst vel.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins