Fréttir dagsins

12.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar.
Verðbólguhorfur hafa versnað og því er viðbúið að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á miðvikudag eftir viku, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Stýrivextir voru lækkaðir úr 7,50 í 7,25 prósent í nóvember í fyrra en greiningardeildin spáir því að sú lækkun gangi til baka á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans.
Stefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar, en tillaga þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi flokksins á Alþingi í dag. Hann tekur við af Ingibjörgu Isaksen. Á þingflokksfundinum var einnig samþykkt að Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Norðausturkjördæmis yrði varaþingflokksformaður.
Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn verður formaður nýs borgarstjórnarflokks óháðra sem tekur formlega til starfa á föstudaginn. Auk Kjartans eru í flokknum Marta Guðjónsdóttir, sem einnig var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helgi Áss Grétarsson 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn í janúar.
Í nýrri skýrslu um Hafrannsóknastofnun er bent á slæma vinnustaðamenningu, óljósa forgangsröðun verkefna og reynsluleysi forstjóra af stjórnun. Lagt er til að lögbundið hlutverk stofnunarinnar verði einfaldað og skýrt með áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir.
Ráðherra menningarmála vill hækka hámarksrefsingu fyrir höfundalagabrot úr tveggja ára fangelsi í sex. Lágur refsirammi endurspegli ekki alvarleika brotanna og það grafi undan kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu hér á landi.
Hljómsveitin Pearl Jam segist standa með íslensku þjóðinni í baráttunni fyrir því að binda enda á laxeldi í opnum sjókvíum. Í færslu á Instagram hvetur hljómsveitin aðdáendur til að skrifa undir undirskriftalista þess efnis.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins