Sign up to save your podcasts
Or

Nám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna)
Í þessum þætti fær Sverrir til sín Málfríði Önnu Eiríksdóttur, tölvunarfræðing og verðandi verkfræðing, sem er við það að ljúka meistaranámi í gervigreind við DTU í Danmörku. Málfríður hefur upplifað það af eigin raun hvernig er að vera í háskólanámi á tímum þar sem leikreglurnar eru að breytast á ógnarhraða.
Við ræðum „bleika fílinn“ í kennslustofunni, hvernig skólakerfið glímir við nýja tækni og hvort notkun gervigreindar í námi sé í raun svindl eða bara nauðsynleg þróun.
Í þættinum er farið yfir:
Nám á tímum gervigreindar: Málfríður segir frá reynslu sinni af námi í DTU þegar ChatGPT og önnur tól mættu skyndilega til leiks og breyttu öllu.
„Secret Cyborgs“: Hvernig nemendur nota tæknina í felum þegar skólar hafa ekki skýrar reglur eða banna notkun alfarið.
Djúpur skilningur vs. „Get Sh*t Done“: Fórnarkostnaðurinn við að nota gervigreind - missum við af djúpum skilningi á grunninum eða verðum við bara skilvirkari starfskraftar?
Covid-gráður vs. AI-gráður: Samlíkingin við að útskrifast í heimsfaraldri; er litið hornauga á þá sem útskrifast með hjálp tækninnar?
Er forritarinn að útrýma sjálfum sér? Pælingar um framtíðina, óttann við tæknina og hvort við séum að smíða tól sem leysa okkur sjálf af hólmi.
Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.
Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/courses
Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson
By Javelin AINám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna)