Fréttir dagsins

13.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið.
Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna. Íslandsbanki birti uppgjör síðasta árs í dag. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár hafi verið 10,5 prósent í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist töluvert.
Sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í stöðu sendiherra á Íslandi, William Long, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í gær. Long vafðist tunga um tönn í fyrstu í svari sínu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Einhver sagði eitthvað og annar sagði annað, og já, ég bætti þessu við með 52. ríkið sem var algerlega óviðeigandi en það var not eitthvað sem ég sagði sem alvarleg yfirlýsing. Hann bætti svo við að hann vonaðist eftir því að Íslendingar myndu gefa honum annað tækifæri.
Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu. Þetta verður gert í gegnum sérstakt verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins, þar sem vopn eru keypt frá Bandaríkjunum og send til Úkraínu.
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínsmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þyngstan dóm sex sakborninga, átta ára fangelsi.
Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins