Fréttir dagsins

13.03.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.
Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í málarekstri af þessu tagi.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað mikið síðan Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran 28. febrúar. Hormússund er lokað fyrir alla olíuflutninga og því er ekki hægt að anna eftirspurn á heimsmörkuðum. Verð á Brent hráolíutunnu er nú yfir 100 dollurum sem hefur ekki gerst síðan í ágúst 2022.
Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðan­verðum Vest­fjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flat­eyrar­vegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóða­hættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvestur­landi og við Hellis­heiði.
Valur vann 28-34 á útivelli gegn ÍBV og tryggði sér deildarmeistaratitilinn í lokaumferð Olís deildar karla. ÍR er fallið úr Olís-deild karla eftir tap gegn FH og er ljóst að liðið leikur í næstefstu deild á næsta tímabili.
Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis.
Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu aðstandenda ungrar konu sem lést þegar tveir lögreglumenn höfðu afskipti af henni þar sem hún var í geðrofi árið 2019. Héraðsdómur taldi lögreglumennina ekki hafa getað séð fyrir afleiðingar afskipta sinna af henni.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins