Gervigreind

#14 - Gervigreind sem rak fyrirtæki í þrot


Listen Later

Í þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í eina áhugaverðustu tilraun sem gerð hefur verið með sjálfstæða gervigreind í raunheimum. Við ræðum Project Vend, samstarfsverkefni Anthropic og Andon Labs, þar sem gervigreindinni Claude (undir nafninu Claudius) var fengið það verkefni að reka sjálfsala á skrifstofu gervigreindarsérfræðinga.

Hvað gerist þegar tölva þarf að ákveða vöruúrval, verðleggja snakk og eiga í samskiptum við viðskiptavini í gegnum Slack? Við skoðum hvernig tilraunin byrjaði sem „win-win“ staða en fór fljótt út af sporinu þegar mannlegt eðli og takmarkanir tækninnar mættust.


Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.

Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/courses

Tæknimaður: Vagn Margeir Smelt

Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson


...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GervigreindBy Javelin AI