Fréttir dagsins

14.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni.
23 einstaklingar frá Bakkakoti og 15 frá öðrum vistheimilum hafa formlega veitt lögmannsstofunni Solidum umboð til að sækja sanngirnisbætur frá ríkinu. Lögmaður stofunnar segir lýsingar þeirra sem þangað hafa leitað sláandi.
Yfir 50 manns eru með stöðu sakbornings í máli þar sem fimm menn er grunaður um að hafa nýtt sér kerfisvillu hjá reikningsstofu bankanna til að komast yfir hundruð milljóna króna frá Landsbankanum. Von er á að enn fleiri bætist í hóp sakborninga á næstunni.
Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn.
Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi líka við um aðrar launahækkanir.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir að fundur hennar og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands, með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið uppbyggilegur. Þau eru stödd á öryggisráðstefnunni í München, sem hófst í dag. Stjórnvöld ríkjanna hafa nýverið átt í viðræðum í kjölfar tíðra fullyrðinga Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin verði að eignast Grænland.
Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins