Fréttir dagsins

15.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu.
Sigurður Ingi Jóhannsson gerði uppgang popúlista og öfga að umfjöllunarefni sínu í sinni hinstu ræðu sem formaður Framsóknarflokksins á 38. flokksþinginu sem fer fram í dag og á morgun.
Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum.
Fjórir eru grunaðir um að hafa í síðasta mánuði svipt mann frelsi sínu, misþyrmt honum í bíl og skilið hann eftir utandyra. Maðurinn var þungt haldinn þegar hann fannst.
Esa, Eftirlitsstofnun EFTA, krefur íslensk stjórnvöld upplýsinga um leyfi veitt til sjókvíaeldis hér á landi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota liggi fyrir.
Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda.
Kjartan Guðmundsson er kominn heim til Íslands rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Hann flaug í sjúkraflugvél ásamt bróður sínum og ferðalagið tók hátt í sólarhring.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins