Örlítið í ólagi

#17 Hvers vegna líður mér svona? – Fæðingarþunglyndi og skömm


Listen Later

Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi snerta um 1 af hverjum 7 mæðrum á Íslandi – en samt er þögnin oft háværari en hjálpin.

Í þessum þætti skoðum við bæði klínískar og tilfinningalegar hliðar: áhættuþætti, einkenni, úrræði og meðferð – en líka mannlegu sögurnar, skömmina, afneitunina og vonina.

Ég opna mig um mína eigin reynslu af fæðingarþunglyndi og deili því sem hjálpaði mér að stíga upp úr þessu erfiða tímabili í lífi mínu.

Þátturinn er fyrir alla sem hafa upplifað þetta sjálfir – og líka þá sem vilja styðja, skilja og sjá betur inn í líðan foreldra á viðkvæmu skeiði lífsins.

Þú ert ekki ein. Þú ert ekki einn. Og það er til hjálp.

Heimildir og fræðsla
  • Kristín Rut – Vísir.is: "Kristín fékk alvarlegt fæðingarþunglyndi: 'Þrengdi að hálsinum á yngri stelpunni'"
  • Sigríður Hrund – Vísir.is: "Var með fæðingarþunglyndi í rúm átta ár"
  • Hlaðvarpsþáttur *Einmitt* #49: Sigríður Hrund – "Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar"
  • Fræðsluvefir:
    • Heilsuvera (landlæknisembættið)
    • Mín líðan / Heilsugæsla
    • Geðhjálp
    • Miðstöð foreldra og barna (Fyrstu tengsl)
    • ...more
      View all episodesView all episodes
      Download on the App Store

      Örlítið í ólagiBy Hrafndis M