Fréttir dagsins

18.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna verður fram haldið í svissnesku borginni Genf í dag með milligöngu Bandaríkjamanna. Hægt virðist miða í samkomulagsátt. Viðræðurnar hófust að nýju í gær og engin merki virtust um að þokaðist í samkomulagsátt til að ljúka þessum mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Þriggja daga opinber heimsókn Friðriks Danakonungs tíunda til Grænlands hefst í höfuðstaðnum Nuuk í dag. Hann boðaði til heimsóknarinnar í janúarlok og lýsti þá yfir stuðningi við málstað Grænlendinga. Á morgun heldur Friðrik í 150 kílómetra ferðalag til norðurs og heimsækir bæinn Maniitsoq, sem stendur á eyju skammt frá fjöllum á meginlandinu með demanta-, rúbína- og asúrsteinsnámum. Á föstudaginn sækir Friðrik konungur danska heimskautahermenn heim sem dvelja í æfingabúðum í bænum Kangerlussuaq, enn norðar á Grænlandi. Í tilkynningu frá hirðinni segir að tilgangur konungsheimsóknarinnar sé að sýna Grænlendingum stuðning vegna ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í landið.
Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast nú eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljónir rúmmetra af kviku safnast þar fyrir frá síðasta eldgosi í júlí. Samkvæmt vef Veðurstofunnar er kvikusöfnun hæg en stöðug. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegast að næstu vikurnar hlaupi kvika frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi.
Leikskóla-leiðin í Reykjavík hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Breytingarnar fela í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun og afslátt fyrir einstæða foreldra og efnaminni fjölskyldur.
Aftur og aftur reyndu börn og fullorðnir að tilkynna að ekki væri allt með felldu á sveitabænum Bakkakoti á Suðurlandi þar sem þau voru í vist. Árið 2002 viðurkenndi þáverandi húsfreyja á bænum, Þóra Bernódusdóttir, að hafa barið einn drengjanna – Svavar Þór Georgsson. Samt sendi Reykjavíkurborg börn í sumardvöl á bænum allt fram til ársins 2005 og samt var barn á vegum Kópavogsbæjar ekki tekið af bænum fyrr en tveimur mánuðum eftir ofbeldið.
Breytingar á útlendingalögum voru samþykktar á Alþingi í gær og nú hafa stjórnvöld heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð brot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Samkvæmt alþjóðalögum má ekki senda fólk til landa þar sem öryggi þess er ógnað.
Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins