Örlítið í ólagi

#19 Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann?


Listen Later

Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann?

Við segjum oft: „Ég er svo stressuð“ eða „ég er með kvíða“ – en vitum við raunverulega hvað við erum að finna?

Í þessum þætti skoðum við hvort það sé munur á emotions og feelings – og hver hann er. Við förum í heimsókn til möndulsins (amygdala), gamla öryggisvarðarins í heilanum sem ýtir á neyðarhnappinn jafnvel þegar við erum ekki í neinni hættu. Við skoðum líka hvernig búddismi kennir okkur að vera með tilfinningum – í stað þess að flýja þær – og hvað það þýðir að mæta sjálfri sér með núvitund og samkennd í eigin garð.

Gígja kemur með mér í þennan þátt, og saman veltum við upp spurningum eins og:

  • Hvernig lærum við að þekkja tilfinningar?

  • Hvers vegna eru þær oft svo flóknar?

  • Og hvernig förum við að því að hlusta í stað þess að laga?

    Velkomin í örlítið í ólagi 💗

    ...more
    View all episodesView all episodes
    Download on the App Store

    Örlítið í ólagiBy Hrafndis M