Í fréttum er þetta helst
Staða bráðamóttöku Landspítala er óbreytt, viku eftir krísufund starfsfólks þar sem ástandið var sagt ógna lífi og öryggi fólks. Dæmi eru um að sjúklingar hafi legið í gluggalausu geymslurými þar í tíu daga, heilbrigðisráðherra boðar aðgerðapakka og vonast til að þannig leysist vandinn.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs að víkja Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr stöðu skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Birta fór fram á það í desember að Unnur viki vegna meints vanhæfis. Birta var meðal stærstu hluthafa Play.
Mikil loftmengun hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og það sama gæti verið uppi á teningnum næstu daga. Rykbindiefni er ekki til á landinu, ekki er hægt að hreinsa göturnar í frosti og útlit er fyrir áframhaldandi þurrk.
Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga.
Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, heyrði fyrst af ofbeldi í garð fósturbarna í Bakkakoti í umfjöllun Kveiks á dögunum. Hann segir að málefni Bakkakots hafi ekki ratað á sitt borð þann tíma sem hann var forstjóri. Hann harmar atburðina og hvetur stjórnvöld til að veita fé í að bæta brotalamir í kerfinu.
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú beðist afsökunar á glannalegum ummælum sem hann lét falla í heitum umræðum á þingi í gær um Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra.
Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag og venju samkvæmt fóru börnin á stjá í alls kyns flottum búningum og söfnuðu sælgæti í poka. Þá var dagskrá í skólum landsins víða með öðru sniði og spenningurinn áþreifanlegur.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.