Umfjöllunarefni tíunda þáttar eru fréttir áratugarins 1918 - 1928. Fjallað er almennt um fréttalandslagið en jafnframt hugað sérstaklega að tveimur ákveðnum málum. 1. desember tóku Íslendingar tekið við stjórnartaumum landsins af Dönum í öllum helstu megindráttum og stofnuðu fullvalda íslenskt ríki. Þá urðu miklar sviptingar í Rússlandi á svipuðum tíma. Árið 1917 féll keisaraveldið í byltingu bolsévíka undir stjórn Vladimirs Lenín og aðeins nokkrum árum seinna, nánar tiltekið 1922 voru Sovétríkin orðin að veruleika sem áttu eftir að setja mark sitt á tuttugustu öldina svo um munaði. Gestir þáttarins eru Guðmundur Hálfdánarson, Jón Trausti Reynisson, Kristrún Heimisdóttir og Ragnheiður Kristjánsdóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.