Umfjöllunarefni áttunda þáttar eru fréttir áratugarins 1938 - 1948. Fjallað er almennt um fréttalandslagið en jafnframt hugað sérstaklega að tveimur ákveðnum málum. Á innlendum vettvangi dró til tíðinda árið 1944 þegar Íslendingar stofnuðu lýðveldi í miðjum hildarleik seinni heimsstyrjaldarinnar sem geisaði á erlendum vettvangi. Þau heljarátök hófust með formlegum hætti með innrás Þjóðverja í Pólland, 1. september 1939 og verða þessir tveir viðburðir, lýðveldisstofnunin og seinni heimsstyrjöldin sérstaklega til umfjöllunar í þættinum. Gestir þáttarins eru Haukur Ingvarsson, Illugi Jökulsson, Kristrún Heimisdóttir og Ragnhildur Thorlacius. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson og tæknimaður er Hrafnkell Sigurðsson.