Á öld ljósvakans - fréttamál á fullveldistíma

1968-1978


Listen Later

Umfjöllunarefni fimmta þáttar eru fréttir áratugarins 1968 - 1978. Fjallað er almennt um fréttalandslagið en jafnframt hugað sérstaklega að tveimur ákveðnum málum. Á innlendum vettvangi bar það til tíðinda árið 1970 að Rauðsokkur kváðu sér hljóðs og fjórum árum síðar, 1975 var kvennafrídagurinn haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn. Báðir atburðir voru til marks um háværa kröfu um aukna þátttöku kvenna í samfélaginu öllu og jafnræði kynjanna á milli. Á erlendum vettvangi, nánar tiltekið í Chile, dró til tíðinda árið 1973 með valdatöku hersins og dauða Salvador Allende, lýðræðislega kosins forseta landsins. Innan við ári síðar var Augusto nokkur Pinochet kominn til valda sem yfirmaður ógnarstjórnar hersins sem stýrði landinu fram til ársins 1990. Gestir þáttarins eru Birna Þórðardóttir, Guðmundur Jónsson, Margrét Heinreksdóttir og Pétur Gunnarsson. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á öld ljósvakans - fréttamál á fullveldistímaBy RÚV