Á öld ljósvakans - fréttamál á fullveldistíma

1988-1998


Listen Later

Umfjöllunarefni þriðja þáttar eru fréttir áratugarins 1988 - 1998. Á innlendum vettvangi bar það til tíðinda árið 1994 að Íslendingar fengu aðgang að innri markaði Evrópusambandsins með samningum um evrópska efnahagssvæðið. Þá beinum við einnig sjónum okkar til Persaflóastríðsins sem braust út árið 1990 með innrás Íraka í Kúveit og náði hámarki snemma árs 1991 þegar Bandaríkjamenn og bandalagsríki þeirra réðust gegn Írökum í - svo að segja - beinni útsendingu á öllum helstu sjónvarpsstöðvum vestan hafs, sem austan. Útsendingar CNN og SkyNews stóðu allan sólarhringinn svo vikum skipti og náðu alla leið hingað til Íslands þegar ákveðið var að gera undanþágu á lögum um þýðingarskyldu fjölmiðla á erlendu efni svo hægt væri að senda beint út frá átökunum. Gestir þáttarins eru Elísabet Jökulsdóttir, Óðinn Jónsson, Silja Bára Ómarsdóttir og Styrmir Gunnarsson.
Umsjón: Marteinn Sindri Jónsson
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á öld ljósvakans - fréttamál á fullveldistímaBy RÚV