Umfjöllunarefni annars þáttar eru fréttir áratugarins 1998 - 2008. Hugað er sérstaklega að fréttum af virkjaframkvæmdum við Kárahnjúka og hryðjuverkaárásunum á New York og Washington, 11. september 2001. Ennfremur er litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Bergur Ebbi, Björn Malmquist, Fríða Björk Ingvarsdóttir og Þóra Arnórsdóttir.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.