Popparasögur

#20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir


Listen Later

Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið.

Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins.

Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, SSSól og Sálin hans Jóns míns, hefur leiðin legið á stærstu svið landsins. Í dag er Stuðlabandið ein þekktasta hljómsveit þjóðarinnar og fastur liður á hátíðum eins og Þjóðhátíð, Lopapeysunni og Kótelettunni.

En á bak við gleðina, sviðsljósið og stóru augnablikin er saga um metnað, þrautseigju og vinnusemi.

Í þessu viðtali ræða þeir Marinó G. Lillendahl og Magnús Kjartan Eyjólfsson um ferðalagið frá bílskúrnum að stærstu hátíðum landsins, breytingar á sveitaballamenningunni, kraftinn í lifandi tónlist og hvernig bandið hélt áfram eftir að Magnús greindist með krabbamein árið 2024. 

Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

PopparasögurBy Vignir Egill Vigfússon